4.11.2008 | 16:17
Ég vill sjá Ólafsvöku daginn innleiddan á Íslandi
Nú er það þannig í pottinn búið að Færeyingar vilja lána okkur peninga. Vinir í raun. Engin smá upphæð heldur, rúmlega 6,1 milljarður íslenskra króna. Og það sem meira er, þá eru allir stjórnmálaflokkarnir þar í landi samþykkir þessari ráðstöfun. Þannig að það er líklegt að af þessu verði.
Þetta er náttúrulega gríðarlega rausnarlegt af þeim og erfitt fyrir Íslendinga að koma að orðum eða gjörðum fyrir þessa miklu reddingu.
Hvernig ber þó að þakka svona? Með blómvöndum og þakkaræðum? Nei-hei. Það yrði þvílíkt "tsjíp".
Ég vill að Ólafsvökudagurinn yrði innleiddur hér eins og þar. Hann yrði að sjálfsögðu með sama sniði og í Færeyjum. Allir myndu klæðast þjóðbúningum, kappróður yrði á milli bæjarfélaga og það væri dansaður keðjudans og sungið langt fram á nótt undir ljúfum tónum.
Færeyingar myndu fyllast stolti að stóri bróðir væri að herma eftir þeim og við myndum þarna fá inn nýtt árlegt skemmti gigg. Svona annar semí 17 júní.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2008 | 03:30
Dabba legasta lag og myndband í heimi?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.10.2008 | 16:43
Mikið heillaspor fyrir Spurs
Ég tel það vera afar gott og mikið heillaspor fyrir Tottenham Hotspur að hafa fengið Harry Redknapp í stjórastólinn í stað Juande Ramos.
Juande Ramos kom eins og ferskur andvari inn í liðið í fyrra, eftir ótímabæra brottvikningu Martin Jol. Hann byrjaði vel, innan vallar með góðum úrslitum og breyttri spilamennsku og utan vallar með breyttri matarvenjum og líkamsáætlunum. Tottenham aðdáendur dýrkuðu hann og héldu að ég held á tímabili að þetta hafi verið gæinn sem fann upp knattspyrnuna.
Eftir góða byrjun hans með Tottenham og titil síðasta vor fór allt í baklás. 3 af einum bestu sóknarmönnum Bretlandseyja seldir á einu bretti og leikmenn eins og Giovanni, 18 ára Mexíkói og 65 kílóa drengur fenginn í þeirra stað. Hvort það hafi verið Ramos sem keypti hann eða yfirmaður knattspyrnumála veit ég ekki en það er nokkuð ljóst að þú selur ekki hjartað eða hryggjarsúluna í liði og hvað þá kaupa óreyndan, lítinn og léttan kjúkling til að reyna að koma í þeirra stað.
Með nýjum manni koma breyttar áherslur og nýr ferskleiki. Harry Redknapp býr yfirgripsmikilli þekkingu á Enskri knattspyrnu og er afar klókur á leikmannamarkaðnum. Er auk þess ákaflega skemmtilegur karakter og segir það sem honum finnst en notast ekki við hundleiðinlegar klisjur. Sem verður að teljast afar jákvætt.
Tottenham gerði rétt að þessu sinni, og munu æðstu menn klúbbsins leyfa Redknapp að ráða öllu í sambandi við kaup og sölur mun stöðugleiki nást á nýjan leik hjá þessum risaklúbb. Hugsanlega eftir nokkur ár þegar hans handbragð verður komið á liðið þá verður hægt að tala um titlabaráttu og Meistaradeildarbaráttu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.10.2008 | 18:05
Augnakonfekt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2008 | 14:29
Spádómur
Akureyri - Valur: 2
HK - Víkingur: 1
Haukar - Fram: 1
Leikur 1) Valur verða of sterkir fyrir Akureyri, þrátt fyrir að kofinn sé fullur í Höllinni, Valur sé með 2 lykilmenn í meiðsli og að ÓBÓ sé ósáttur með sóknarleik sinna manna. Ballið í kringum Akureyrar liðið er ekkert Never ending story og spái ég að þetta verði upphafið að þónokkurri lægð hjá Akureyrarliðinu, því miður fyrir leikmenn, þjálfara og fylgismenn þeirra. 3-4 marka sigur Valsara
Leikur 2) Víkingar þurfa meiri tíma. Margt ágætt í gangi og ungir strákar og svona, en þú ferð ekki í gegnum tímabil með einungis 8-9 spilhæfa menn (og það í kringum tvítugt) í úrvalsdeild án þess að falla. Var ekki ýkja hrifinn af Kópavogsdrengjum í byrjun en mér skilst að þetta sé orðið betra hjá þeim. 5-6 marka sigur HK
Leikur 3) Hvort er betra að taka jafntefli við FH eða sigur á móti Vezprem með sér inn í þennan leik? Vörn og markvarsla hjá Haukum skilar þessum sigri eins og öllum öðrum. 6-7 marka sigur Hauka
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2008 | 19:02
Hvað er verið að bauna yfir manninn?
Ekki skil ég þessa umræðu um meinta leti Dimitar Berbatov sem hefur teygt út anga sína alltof langt.
Hvað með það þótt maðurinn hlaupi 2 km í leikjum? Hann er framherji, hann á að búa til svæði fyrir aðra leikmenn, leggja upp og skora. Einfalt! Hann verður alltaf dæmdur af því og það sem meira er, hann skorar og leggur upp, og vel af því.
Það er nóg af öðrum leikmönnum í kringum hann sem vinna á við tvo leikmenn og hvers vegna á hann þá, í því hlutverki sem hann er í, að vera að göslast í einhverjum óþarfa hlaupum sem aðrir eru í og taka af orku og kraft?
Vil taka það fram að maðurinn hefur skorað 370 mörk í 178 leikjum og það er ekki hans sterkasta hlið meira að segja. Það eru stoðsendingar sem ég hef ekki tölu á en þær hljóta að vera gígantískar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2008 | 20:18
Björn að vinna sér inn prik
Kannski ekki seinna vænna. Það eru mýmörg mál sem hann hefur verið vafasamur í og nú síðast, málefni Ríkislögreglustjóra á Suðurnesjum þar sem hann fékk fjölmargar pillur í sig. Einn af umdeildustu mönnunum í pólítík og nokkuð ljóst að það yrðu margir Sjálfstæðismenn fegnir að vera lausir við hann.
En það verður ekki tekið af honum að hann er maður meiri, sem Dómsmálaráðherra, að setja af stað rannsóknir sem athuga það hvort eitthvað refsivert athæfi hafi átt sér stað varðandi hrun bankanna og stöðu bankakerfisins.
Sakleysi uns sekt er sönnuð, en sé hægt að sanna eitthvað og draga einhverja til ábyrgða er það hið besta mál.
Hægt er að sjá bréf hans á mbl.is/media/21/1021/pdf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2008 | 19:35
Fólksflóttinn frá Íslandi
Þetta er einmitt það sem getur orðið raunin með marga áður en langt um líður, sérstaklega með margt ungt fólk. Fær ekki vinnu við "sitt hæfi" og mun því leita til annara landa á næstunni.
Þessi skopmynd minnir mann samt á hvað Tinna bækurnar og spólurnar voru ógeðslega gott efni. Las allar bækurnar og sá flestar myndirnar.
Þarf að fara upp á Borgarbókasafn, taka 8 ára systurson minn með og leigja eitthvað af þessu efni með Tinna og félögum. Svo gæti ég alltaf skýlt mig bakvið hann. Það væri nefnilega ekkert sérstaklega töff ef 21 árs gamall maður væri að leigja Tinna bara sisvona.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2008 | 18:45
Sensational
Einhver tjalli að herma eftir 3 leikmönnum Liverpool og framkvæmdarstjóra liðsins.
Hann nær þeim öllum nokkuð vel en eftirherman á Steven Gerrard er í algjörum sérflokki.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Mínir þankagangar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 8754
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


golf




